Fréttir


  • Vík

17.3.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna landnotkunarbreytinga í austurhluta Víkur

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. mars 2021, breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012 - 2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. janúar 2021.

Breytingin felst m.a. í stækkun íbúðarbyggðar, verslunar- og þjónustusvæða og iðnaðarsvæða í austurhluta Víkur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.