Fréttir


18.4.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna hluta Kópaskerslínu 1, jarðstrengur í landi Brekku

Skipulagsstofnun staðfesti 17. apríl 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. mars 2023.

Í breytingunni felst að hluti núverandi Kópaskerslínu 1, um 2,5 km loftlína, verður tekin niður og lögð í jörðu á öðrum stað í landi Brekku.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.