Fréttir


2.12.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna Húsavíkurhöfða

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. nóvember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. október 2019.

Aðalskipulagsbreytingin felst í að stækka landnotkunarreit V4 úr 5,4 ha í 6,7 ha til norðurs á kostnað opins svæðis til sérstakra nota og íbúðarsvæðis Í1.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.