Fréttir


16.3.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna jarðstrengs frá Þeistareykjum að Kópaskerslínu 1

Skipulagsstofnun staðfesti 15. mars 2023 breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. febrúar 2023.

Í breytingunni felst lagning jarðstrengs frá Þeistareykjum meðfram gamla Þeistareykjavegi til norðurs í átt að Kópaskerslínu 1 vegna áforma um að bæta raforkuöryggi og styrkja Kópaskerslínu 1 á tveimur stöðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.