Fréttir


  • Loftmynd af Grenstanga

16.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Grenstanga

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. maí 2020.

Í breytingunni felst að 4 ha frístundabyggð F-218 er breytt í íbúðarbyggð ÍB-511 þar sem gert er ráð fyrir 8 íbúðarhúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.