Fréttir


  • Lambalækur

6.10.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Kvoslækjar og Lambalækjar, stækkun íbúðarbyggðar ÍB-366.

Skipulagsstofnun staðfesti 6. október 2020 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. ágúst 2020.

Í breytingunni felst a um 25,4 ha frístundabyggð F-322 í landi Lambalækjar er breytt í íbúðarbyggð. Vestan við frístundabyggðina er íbúðarbyggð ÍB-366 í landi Kvoslækjar sem stækkar um það sem nemur stærð frístundabyggðarinnar. Gert er ráð fyrir 6 íbúðarlóðum í landi Lambalækjar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.