Fréttir


9.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna Langhólma í landi Eyvindarholts

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. janúar 2019.

Í breytingunni felst að 36,2 ha landbúnaðarsvæði í landi Eyvindarholts er breytt í frístundabyggð fyrir allt að 14 frístundahúsalóðir.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.