Fréttir


  • Tengivegur ofan Hvolsvallar

1.10.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra vegna nýs tengivegar ofan Hvolsvallar

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. september. 2021, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. júlí. 2021.

Í breytingunni felst að marka stefnu um nýjan tengiveg (Ofanbyggðarveg) sem leggja á ofan við byggðina á Hvolsvelli, milli Þjóðvegar 1 og Nýbílavegar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.