Fréttir


  • Ferjufit

2.7.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra, Ferjufit, efnistökusvæði E122

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. júlí 2020, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. júní 2020.

Í breytingunni felst að 0,5 ha af landgræðslu- og skógræktarsvæði SL26 er breytt í efnistökusvæði E122, þar sem gert er ráð fyrir allt að 10.000 m² efnistöku (grjótnámi).

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.