Fréttir


  • Árbæjarhellir, Heiðarbrún og Ægissíða, íbúðarsvæði

22.12.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Árbæjarhellis, Heiðarbrúnar og Ægissíðu, íbúðarsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. des. 2021, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. nóv. 2021.

Í breytingunni felst afmörkun tveggja nýrra íbúðarsvæða rétt utan við Hellu, ÍB 32 og ÍB 33.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.