Fréttir


  • Varmadalur og Gröf

9.6.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna efnistökusvæðis í landi Grafar og Varmadals

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júní 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. nóvember 2021.

Í breytingunni felst stefna um efnistökusvæði (E123) í Tröllkonugili í landi Grafar og Varmadals þar sem heimilt verður að taka allt að 50.000 m3 af möl á um 2,5 ha svæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.