Fréttir


  • Minna Hof

7.1.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna íbúðarbyggðar í landi Minna-Hofs

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. janúar 2021, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016 - 2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. desember 2020.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Minna-Hofs er breytt í íbúðarbyggð fyrir 41 íbúðarlóð.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.