Fréttir


13.12.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Öldutúns ÍB24

Skipulagsstofnun staðfesti þann 12. desember 2019 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að ákvæði um þéttleika byggðar í íbúðarbyggð ÍB24 er breytt úr 10-12 íbúðir/ha í 3 íbúðir/ha. Eftir breytinguna nefnist svæðið Öldutún í stað Garðs (Engjagarðs).

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda