Fréttir


4.8.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna vatnsverndarsvæðis fyrir Kerauga og Tvíbytnulæk

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. ágúst 2022, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. júlí 2022.

Í breytingunni felst endurskoðun á afmörkun vatnsverndarsvæðis fyrir Kerauga og Tvíbytnulæk. Bæði grannsvæði og fjarsvæði stækka lítilsháttar og breyta um lögun.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.