Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna stækkunar iðnaðarsvæðis I5, Reykjanesi
Skipulagsstofnun staðfesti 7. nóvember 2023 breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 13. júlí 2023.
Í breytingunni felst að iðnaðarsvæði I5 á Reykjanesi er stækkað um 51,8 ha og byggingarmagn aukið vegna áforma um 40.000 tonna landeldi á ársgrundvelli.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.