Fréttir


1.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna endurnýjunar leyfa til gististaða

Skipulagsstofnun staðfesti 31. ágúst 2020 breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 2. júlí 2020.

Breytingin varðar fyrirvara um túlkun ákvæða um gististaði og afturvirkni settra skipulagsákvæða.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.