Fréttir


19.12.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna opnunartíma veitingastaða

Skipulagsstofnun staðfesti, 18. desember 2018, breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 1. nóvember 2018.

Í breytingunni felst að til álita getur komið að víkja frá almennum viðmiðum um opnunartíma veitingastaða og vegna tækifærisleyfa. Bætt er neðanmálstexta við töflu 2 á bls. 221 varðandi opnunartíma og ákvæði um útgáfu tækifærisleyfa í kaflanum um landnotkun á bls. 220.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.