Fréttir


  • Úr aðalskipulagsuppdrætti Seltjarnarnesbæjar

2.7.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar vegna stækkunar íbúðarbyggðar við Kirkjubraut

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. júlí 2021, breytingu á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. apríl 2021.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð við Kirkjubraut (ÍB-1) stækkar um 0,2 ha og bætt er við einni íbúðarlóð fyrir fjölbýli. Opið svæði á Valhúsahæð minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.