Fréttir


24.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Seyðisfjarðar vegna Vesturvegar 4

Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2020 breytingu á Aðalskipulagi Seyðisfjarðar 2010-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. mars 2020.

Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Vesturvegur 4 er breytt í verslun og þjónustu þar sem heimil verður minniháttar atvinnustarfsemi í bland við búsetu, svo sem gistiheimili og veitingahús.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.