Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna frístundabyggðar við Hæðargarðsvatn
Skipulagsstofnun staðfesti, 2. febrúar 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. janúar 2022.
Í breytingunni felst að heimila útleigu frístundahúsa í frístundabyggðinni við Hæðargarðsvatn með tilteknum skilyrðum.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.