Fréttir


23.3.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri

Skipulagsstofnun staðfesti þann 20. mars 2017 breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. janúar 2017.

Í breytingunni felst að landnotkun er breytt á 6,5 ha svæði, milli Skaftár og þjóðvegar 1, úr óbyggðu svæði í stofnanasvæði S-12, vegna gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Auglýsing um staðfestinguna mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda innan tíðar og með því öðlast gildi.

Í kjölfarið verður hægt að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.