Fréttir


  • Fjölgun íbúða, Skaftárhreppur

20.8.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna íbúðarbyggðar á Kirkjubæjarklaustri

Skipulagsstofnun staðfesti 19. ágúst 2020 breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. janúar 2020.

Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað úr 19 í 38 á íbúðarsvæði Íb-2 Skerja- og Skriðuvelli og Klausturvegur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda