Fréttir


  • Flatir í landi Réttarholts, Skeiða- og Gnúpverjahreppi

11.6.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flatir í landi Réttarholts

Skipulagsstofnun staðfesti 10. júní 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. janúar 2021.

Í breytingunni felst að skilgreining lóðar nr. 17 á Flötum í landi Réttarholts er breytt úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.