Fréttir


6.6.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna frístundabyggðar F4 við Mið- og Árhraunsveg í Áshildarmýri

Skipulagsstofnun staðfesti 6. júní 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. nóvember 2022.

Í breytingunni felst að frístundabyggð F4 í Áshildarmýri minnkar úr 78 ha í 59 ha og landbúnaðarsvæði stækkar sem því nemur, en um er að ræða þekkt flóðasvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.