Fréttir


16.11.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna frístundabyggðar í landi Miðhúsa II

Skipulagsstofnun staðfesti 15. nóvember 2022 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. september 2022.

Í breytingunni felst að afmörkun frístundabyggðar F39 í landi Miðhúsa II breytist en svæðið er beggja vegna Þjórsárdalsvegar. Neðan vegarins minnkar svæðið um 10 ha og ofan vegarins stækkar það um 5 ha. Frístundabyggðin verður 60 ha að stærð eftir breytingu. Landbúnaðarsvæði beggja vegna Þjórsárdalsvegar breytist til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.