Fréttir


  • Hraunhólar, Skeiða- og Gnúpverjahrepp

1.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Hraunhóla, íbúðarbyggð og frístundabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti, 30. mars 2022, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. desember 2021.

Í breytingunni felst skilgreining 12 ha íbúðarbyggðar (ÍB10) í landi Hraunhóla og 6 ha stækkun frístundabyggðar (F42) sem er í landi Þjórsárholts, inn á land Hraunhóla.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.