Fréttir


  • Búrfellsvirkjun, náma E9 við Ísakot

11.8.2017

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna námu E9 við Ísakot

Skipulagsstofnun staðfesti þann 11. ágúst 2017 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverja-hrepps 2004-2016, sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. apríl 2017.

Í breytingunni felst að heimilt verður að auka efnistöku úr námu E9 við Ísakot, úr 30.000 m3  í 45.000 m3. Afmörkun námusvæðisins er óbreytt. Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar, þegar hún hefur öðlast gildi.