Fréttir


6.12.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Reykholts í Þjórsárdal

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2018, breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. október 2018.

Í breytingunni felst að opnu svæði til sérstakra nota í Þjórsárdal er breytt í 13 ha verslunar- og þjónustusvæði við Reykholt (V12) og 2 ha verslunar- og þjónustusvæði við vegamót Þjórsárdalsvegar og aðkomuvegar að Reykholti (V13). Gatnamótin eru færð aðeins austar. Einnig er gert ráð fyrir nýju brunnsvæði og grannsvæði vatnsverndar í Þjórsárdal.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.