Fréttir


8.7.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna stækkunar íbúðarbyggðar í Áshildarmýri í landi Kílhrauns

Skipulagsstofnun staðfesti 6. júlí 2022 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. janúar 2022.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð ÍB1 í Áshildarmýri í landi Kílhrauns stækkar til austurs og frístundabyggð F4 minnkar samsvarandi. Gert er ráð fyrir 11 íbúðarlóðum á svæðinu sem stækkunin tekur til.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.