Fréttir


22.5.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna veiðihúss Bæjarás við Stóru-Laxá

Skipulagsstofnun staðfesti 19. maí 2023 breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. apríl 2023

Í breytingunni felst stækkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis (AF2) um 1 ha vegna áforma um byggingu allt að 300 m2 veiðihúss með allt að 15 gistirúm á Bæjarási. Með breytingunni verður svæðið tvískipt. Landbúnaðarsvæði minnkar sem stækkuninni nemur

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.