Fréttir


7.5.2019

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 3 og efnistökusvæða

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. maí 2019, breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 27. mars 2019.

Í breytingunni felst breytt lega Kröflulínu 3 næst Kröflusvæðinu auk þess sem skilgreind eru fjögur ný efnistökusvæði vegna hennar. Um 6-7 km austan Kröflusvæðisins er línustæðinu hliðrað óverulega til austurs.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.