Fréttir


9.5.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Snæfellsbæjar vegna íþróttasvæðis ÍÞ4 austan við Rif

Skipulagsstofnun staðfesti 9. maí 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar 2015-2031 sem samþykkt var í bæjarstjórn 2. mars 2023.

Í breytingunni felst að 10,7 ha leiksvæði er skilgreint sem íþróttasvæði ÍÞ4. Svæðið er notað fyrir akstursíþróttir.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.