Fréttir


  • Geldingsá

18.4.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps í landi Geldingsár

Skipulagsstofnun staðfesti 16. apríl 2021 breytingu á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Geldingsár er breytt í þrjár nýjar íbúðarbyggðir, ÍB23, ÍB24 og ÍB25 og nýtt verslunar- og þjónustusvæði V9. Einnig er Heiðarbyggð, frístundabyggð F5, minnkuð um 1,5 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1 mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.