Fréttir


  • Nauthagi, Árborg

3.12.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna íbúðarbyggðar við Nauthaga á Selfossi

Skipulagsstofnun staðfesti, 3. desember 2021, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2010-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. október 2021.

Í breytingunni felst að hluti útivistarsvæðis Ú2 við Nauthaga á Selfossi er breytt úr opnu svæði til sérstakra nota í íbúðarbyggð fyrir 2000 m2 lóð fyrir einnar hæðar byggingu með 6 – 8 íbúðum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.