Fréttir


  • Skinney

30.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna efnistöku í Skinney

Skipulagsstofnun staðfesti, 30. september 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. ágúst 2020.

Í breytingunni felst að heimiluð efnistaka í Skinney eykst úr 30.000 m3 í allt að 49.000 m3.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.