Fréttir


14.2.2018

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna ferðaþjónustu á 11 stöðum

Skipulagsstofnun staðfesti þann 13. febrúar 2018 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2017.

Í breytingunni felst að skilgreind er landnotkun fyrir uppbyggingu á ferðaþjónusta á 11 stöðum í sveitarfélaginu, frá Suðursveit og austur að Lóni.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.