Fréttir


  • Háhóll

6.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Háhóls/Dilksness

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. janúar 2020.

Í breytingunni felst að 2,5 ha landbúnaðarsvæði í landi Dilksness er skilgreint fyrir verslun og þjónustu þar sem gert verður ráð fyrir gistiþjónustu, verslun og veitingasölu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.