Fréttir


30.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Hnappavalla

Skipulagsstofnun staðfesti, 29. september 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. ágúst 2020.

Í breytingunni felst að gistirýmum á hótelinu á Hnappavöllum (VÞ26) er fjölgað úr 120 í 125.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.