Fréttir


  • Íbúðarbyggð á Höfn

19.10.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna íbúðarbyggðar á Höfn

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. október 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 16. apríl 2020.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð í Innbæ á Höfn (ÍB9) er stækkað um 1 ha og minnkar opið svæði sem því nemur. Bætt verður við allt að 10 íbúðum í raðhúsum og einbýlishúsum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.