Fréttir


  • Hagaleira_hofn

20.5.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna íbúðarbyggðar við Hagaleiru

Skipulagsstofnun staðfesti 19. maí 2022 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. apríl 2022.

Í breytingunni felst að íbúðarbyggð á Leirusvæði ÍB1 stækkar um 0,3 ha til suðvesturs og opið svæði OP2 minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.