Fréttir


22.9.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna stefnu um ferðaþjónustu, stakar framkvæmdir o.fl.

Skipulagsstofnun staðfesti 21. september 2020 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 19. mars 2020.

Um er að ræða breytingu á heimildum fyrir gistiþjónustu, m.a. vegna reglugerðarbreytinga, settar eru heimildir fyrir stakar framkvæmdir og áhersla er lögð á fjölbreytta ferðamáta.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.