Fréttir


22.6.2023

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna vegna fjölgunar íbúða við Holt á Mýrum

Skipulagsstofnun staðfesti 21. júní 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 26. apríl 2023.

Í breytingunni felst að íbúðum innan íbúðarbyggðar ÍB12 í landi Holts á Mýrum er fjölgað úr allt að 20 í allt að 30.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.