Fréttir


  • Árbær 4, Ölfuss

3.3.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Árbæjar 4, landbúnaðarsvæði

Skipulagsstofnun staðfesti 3. mars 2021 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010 - 2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. janúar 2021.

Í breytingunni felst að opnu svæði til sérstakra nota fyrir hesthús (O1) er breytt í landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.