Fréttir


  • Grásteinn

15.5.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Grásteins, íbúðarsvæði Í13

Skipulagsstofnun staðfesti 15. maí 2020 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2020.

Í breytingunni felst að á íbúðarsvæðinu Grásteinn (Í13) er lóðum fjölgað úr 5 í 10 og íbúðum úr 5 í 16 þar sem gert verður ráð fyrir bæði parhúsum og einbýlishúsum á landnotkunarreitnum sem áfram er 5 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.