Fréttir


  • Norðurhraun

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna íbúðarbyggðar í Norðurhrauni

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. desember 2020 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 15. desember 2020.

Í breytingunni felst fjölgun íbúða í Norðurhrauni (Í6) í Þorlákshöfn úr 51 í 75.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.