Fréttir


  • Riftún, Ölfus

22.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Riftúns, verslun- og þjónusta

Skipulagsstofnun staðfesti 22. apríl 2022 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2010-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 24. febrúar 2022.

Í breytingunni felst að rúmlega 9 ha landbúnaðarsvæði í landi Riftúns er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu (V21) vegna áforma um uppbyggingu ferðaþjónustu m.a. ylrækt og baðlón.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.