Fréttir


  • Hvassahraun

4.2.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga vegna frístundabyggðar í Hvassahrauni

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. febrúar 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga sem samþykkt var í bæjarstjórn 27. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að heimila heimagistingu og útleigu frístundahúsa í frístundabyggðinni Hvassahrauni (F1) með tilteknum takmörkunum.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.