Fréttir


  • Skyggnis

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga vegna íbúðarbyggðar norðan Skyggnis

Skipulagsstofnun staðfesti, 21. desember 2020, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. nóvember 2020.

Í breytingunni felst að í stað blandaðrar landnotkunar íbúðarbyggðar og miðsvæðis á reit Þ-8 norðan Skyggnis verður eingöngu skilgreind íbúðarbyggð (ÍB-4).

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.