Fréttir


  • Vatnsból Voga

22.12.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga vegna nýs vatnsbóls

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. desember 2020, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. nóvember 2020.

Í breytingunni felst ný staðsetning á vatnsbóli VB-2 og afmörkun vatnsverndarsvæðis þess.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.