Fréttir


  • Þing

15.1.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar vegna efnistöku í Eyjardal fyrir Hólasandslínu 3

Skipulagsstofnun staðfesti, 14. janúar 2021, breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010 – 2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 19. nóvember 2020. 

Í breytingunni felst að fellt er niður efnistökusvæði E-60 í Eyjardal og tvö ný afmörkuð í staðinn, E-68 og E-69 vegna uppbyggingar Hólasandslínu 3.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.